Fotbolti.net
18.08.21 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Nainggolan til Antwerp (Staðfest): Ég var svikinn

Nainggolan til Antwerp (Staðfest): Ég var svikinn
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan skrifaði undir tveggja ára samning við Royal Antwerp í heimalandinu á dögunum.
Nainggolan er 33 ára gamall og rifti samningi sínum við Inter í sumar til að ganga í raðir Cagliari enn eina ferðina. Nainggolan hefur oft komið við hjá Cagliari á ferlinum og á um 200 leiki að baki fyrir félagið.

Viðræður hjá Nainggolan og Cagliari slitnuðu og endaði miðjumaðurinn í heimalandinu.

„Ég er svekktur, mér líður eins og ég hafi verið svikinn. Ég vildi fara aftur til Cagliari og við hófum viðræður en svo hurfu stjórnendurnir bara. Ég vildi skrifa undir hjá félaginu en þeir sýndu mér engan áhuga," sagði Nainggolan.

„Ég hafnaði miklum pening frá Inter þegar ég rifti samningnum. Draumurinn var að enda ferilinn hjá Cagliari og því varð ég mjög sár þegar ég sá að félagið vildi mig ekki."

Nainggolan hóf ferilinn hjá Piacenza en það var hjá Cagliari sem hann gerði garðinn frægan áður en hann var seldur til Roma og þaðan svo til Inter.

„Við umboðsmaðurinn vorum handvissir um að við værum á leið aftur til Cagliari. Viðræður fjöruðu svo bara út á dularfullan hátt."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.