Tanguy Nianzou er genginn til liðs við Sevilla frá Bayern Munchen. Kaupverðið er talið vera 20 milljónir evra. Hann skrifar undir fimm ára samning við spænska liðið.
Þessi tvítugi Frakki gekk til liðs við Bayern frá PSG árið 2020. Hann lék 28 leiki á þessum tveimur árum fyrir þýska félagið.
Bayern er með forkaups rétt á honum og fær prósentu af næstu sölu.
Nianzou kemur til Sevilla eftir að spænska liðið seldi landa hans Jules Koundé til Barcelona á dögunum.
🆕 1️⃣4️⃣ 🤩 pic.twitter.com/vfnEMHsg1z
— Sevilla FC (@SevillaFC_ENG) August 17, 2022
Athugasemdir