Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. september 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmaður Liverpool sendur meðvitundarlaus á spítala
Mynd: Getty Images
Farið var með Steven Allen, stuðningsmann Liverpool, á spítala í Napólí í hálfleik í leik Napoli og Liverpool í gærkvöldi.

Bullur úr röðum Napoli réðust að Allen þar sem hann sat á bar en hann hélt áfram leið sinni og fór á San Paolo leikvanginn með opið höfuðsár.

Í hálfleik var blóðmissirinn orðinn það mikill að það leið yfir Allen og hann sendur á spítala.

Heimamenn í Napólí hafa verið til talsverðra vandræða fyrir leik liðanna en það eru ekki liðnir 18 mánuðir síðan bullur úr röðum Roma sendu Sean Cox, stuðningsmann Liverpool, á spítala. Cox fór í dá og óljóst hvort hann geti nokkurn tímann náð fullum bata.
Athugasemdir
banner
banner
banner