„Það er ekkert í gangi," sagði Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, í viðtali við Sky Sports aðspurður hvort hann sé að gera nýjan samning við félagið.
Van Dijk er með samning til ársins 2023 en á dögunum fóru af stað fréttir um að hann væri að ganga frá nýjum sex ára samning.
Van Dijk er með samning til ársins 2023 en á dögunum fóru af stað fréttir um að hann væri að ganga frá nýjum sex ára samning.
Van Dijk neitar því að samningaviðræður séu í gangi þessa dagana.
„Ég sá fréttir í fjölmiðlum um að ég væri búinn að samþykkja nýjan samning og eitthvað slíkt," sagði Van Dijk.
„Ég er ekki einu sinni í viðræðum í augnablikinu. Það eina sem ég geri núna er að einbeita mér að leikjunum og við sjáum hvað gæti gerst í framtíðinni."
Athugasemdir