Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 18. september 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Daníel Hafsteins missir af næstu leikjum FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Hafsteinsson, miðjumaður FH, hefur misst af síðustu þremur leikjum liðsins vegna meiðsla á hné.

Ljóst er að Daníel verður frá keppni í 10-14 daga í viðbót sem þýðir að hann missir að minnsta kosti af þremur leikjum til viðbótar eða jafnvel fleirum.

Baldur Sigurðsson hefur tekið stöðu Daníels á miðjunni í síðustu tveimur leikjum.

„Daniel þarf meiri hvíld og verður í meðhöndlun næstu 10-14 dagana. Hann þarf að hvíla og huga betur að sér. Því miður er staðan þannig hjá honum," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari FH, eftir 1-0 sigurinn á Víkingi í gær.

Pétur Viðarsson, varnarmaður FH, tognaði í upphitun í leiknum í gær en Hjörtur Logi Valgarðsson tók stöðu hans og skoraði eina mark leiksins.

Næstu leikir FH
Sunnudagur - Fylkir
Fimmtudagur 24. sept - Valur
Sunnudagur 27. sept - Fjölnir
Fimmtudagur 1. október - Stjarnan
Sunnudagur 4. október - ÍA
Eiður Smári: Víkingarnir settu okkur undir mikla pressu
Athugasemdir
banner
banner
banner