Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. september 2020 14:15
Magnús Már Einarsson
Gonzalo Higuain til Inter Miami (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Gonzalo Higuain hefur gengið til liðs við Inter Miami í Bandaríkjunum eftir að hafa náð samkomulagi um starfslok hjá Juventus á Ítalíu.

Hinn 32 ára gamli Higuain kom til Juventus frá Napoli á 75 milljónir punda árið 2016 en hann var á þeim tíma þriðji dýrasti leikmaður sögunnar.

Higuain var ekki í áætlunum hjá Andrea Pirlo sem tók við Juventus í sumar og því var ákveðið að semja um starfslok.

Higuain fer beint í treyju númer 9 hjá Inter Miami.

Inter Miami er félag sem er í eigu David Beckham en það spilar í MLS-deildinni.


Athugasemdir
banner
banner