Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
   sun 18. september 2022 20:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi tekur við Brighton (Staðfest)
Mynd: EPA

Brighton hefur fundið nýjan stjóra en Roberto De Zerbi er tekinn við liðinu og hefur gert fjögurra ára samning.


De Zerbi var síðast hjá Shakhtar Donetsk en hætti þar eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Hann vakti athygli fyrir störf sín hjá Sassuolo á Ítalíu þar sem liðið endaði í 8. sæti í Serie A í tvígang. Þá vann hann Ofurbikarinn í Úkraínu með Shakhtar.

Brighton hefur náð samkomulagi við þjálfarateymið hans og munu þeir verða klárir að stýra liðinu gegn Liverpool í næstu umferð.


Athugasemdir