Fotbolti.net
18.10.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Hafsteinn Briem í Fram (Staðfest)

Hafsteinn Briem í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafsteinn Briem hefur gengið til liðs við Fram en þetta kemur fram á Vísi.is.

Hafsteinn spilaði með Haukum í 1. deildinni í sumar en þessi 22 ára gamli miðjumaður hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Fram.
Átta leikmenn hafa farið frá Fram eftir tímabilið en Bjarni Guðjónsson nýráðinn þjálfari liðsins hefur lýst því yfir að hann ætli að byggja á ungum og efnilegum leikmönnum.

,,Við ætlum að sækja unga og efnilega leikmenn og gefa þeim tækifæri til að spila í efstu deild. Á Íslandi er fullt af ungum og frambærilegum leikmönnum sem hafa fengið fá tækifæri,\" sagði Bjarni meðal annars í löngu viðtali á Fótbolta.net í gær.

Hafsteinn er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Fram eftir að Bjarni tók við liðinu en hann hefur einnig leikið með HK og Val á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.