18.10.19 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Romero hefur haldið hreinu í sex af sjö úrvalsdeildarleikjum

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United gæti verið án David De Gea í stórleiknum gegn Liverpool á sunnudaginn.
De Gea fór meiddur af velli í leik með spænska landsliðinu og gæti argentínski markvörðurinn Sergio Romero tekið sæti hans í byrjunarliði Rauðu djöflanna.
Romero er 32 ára og hefur verið hjá Man Utd í rúmlega fjögur ár en aldrei tekist að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu. Hann var aðalmarkvörður Argentínu þar til í fyrra og á 96 leiki að baki fyrir þjóð sína.
Romero hefur staðið sig mjög vel hjá Man Utd þrátt fyrir lítið af tækifærum. Hann hefur haldið hreinu í sex af sjö úrvalsdeildarleikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið og þá hefur Man Utd aldrei tapað 90 mínútna leik á Old Trafford með hann í byrjunarliðinu (17 sigrar, 5 jafntefli).
Óljóst er hvort De Gea nái leiknum en stuðningsmenn Man Utd þurfa ekki að óttast því tölfræði Romero í úrvalsdeildinni er betri heldur en hjá De Gea á flestum sviðum.
Liverpool er með fullt hús stiga eftir átta fyrstu umferðir tímabilsins. Man Utd hefur farið illa af stað og er hægt að sjá muninn á liðunum á stöðutöflunni hér fyrir neðan.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |