Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 18. október 2021 07:00
Victor Pálsson
Hreifst mest af Thiago hjá Bayern
Mynd: Getty Images
Jamal Musiala, leikmaður Bayern Munchen, var mest hrifinn af Thiago Alcantara er hann byrjaði að æfa með aðalliði félagsins.

Musiala er gríðarlega efnilegur leikmaður en hann byrjaði fyrst að spila með aðalliði Bayern 2019/2020 eða síðasta tímabil Thiago.

Ekki löngu seinna var Thiago farinn til Englands en hann er í dag á mála hjá Liverpool en á enn eftir að sýna sitt besta með félaginu.

Musiala spilar með mörgum stórstjörnum hjá Bayern en hann tók mest eftir því sem Thiago gerði á æfingum liðsins.

„Þegar ég kom fyrst inn var ég mest hrifinn af Thiago. Hans sendingartækni var ótrúleg að fylgjast með en það má nefna toppleikmennina eins og Robert Lewandowski og Joshua Kimmich,“ sagði Musiala.

„Lewandowski hvernig hann kláraði færin og bara tækni Kimmich í heildina, þetta er allt í toppklassa.“

Þrátt fyrir ungan aldur þá spilaði Musiala 37 leiki fyrir Bayern á síðustu leiktíð og skoraði þar sjö mörk. Hann fagnaði 18 ára afmæli sínu í febrúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner