18.11.13 - 14:26
Brynjar Ingi Erluson
Jón Stefán Jónsson ráðinn þjálfari Tindastóls (Staðfest)

Jón Stefán Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Stefán Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur ráðið Jón Stefán Jónsson sem þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu, en þetta kemur fram á Norðursport.net í dag.
Jón Stefán hefur þjálfað hjá yngri flokkum Þórs í mörg ár auk þess sem hann lék með liðinu á sínum tíma.
Knattspyrnudeild Tindastóls ákvað að ráða Jón Stefán sem næsta þjálfara liðsins, en Halldór Jón Sigurðsson hætti með liðið eftir tímabilið og er nú aðstoðarþjálfari Vals í Pepsi-deild karla.
Samkvæmt heimildum Norðursports mun Jón Stefán þó áfram sinna verkefnum sínum hjá Þór til vors en þá lætur hann endanlega af störfum.
Fréttatilkynning Tindastóls:
Jón Stefán Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari m.fl. karla hjá Tindastóli. Frá þessu var gengið um helgina.
Jónsi, sem er með UEFA A þjálfaragráðu frá árinu 2011, hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2004 og þá lengst af í yngri flokkum Þórs. Árið 2011 fór hann suður og gerðist þjálfari hjá Haukum sem aðalþjálfari m.fl. kvenna sl. tvö ár.
Knattspyrnudeild væntir mikils að samstarfinu við hann enda fara hugmyndir og framtíðarsýn beggja vel saman.
Knattspyrnudeild Tindastóls

Heimild: Norðursport