Fotbolti.net
18.12.13 - 19:21
Magnús Már Einarsson

Ingimar Elí og Wentzel Steinarr í ÍA (Staðfest)

Wentzel Steinarr.

Wentzel Steinarr.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

ÍA hefur fengið Ingimar Elí Hlynsson og Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban í sínar raðir en þeir skrifuðu undir samning hjá félaginu í kvöld.

Ingimar Elí kemur til ÍA frá FH en Wentzel Steinarr kemur frá Aftureldingu.
Ingimar Elí er 21 árs gamall miðjumaður en hann hefur verið á mála hjá FH undanfarin þrjú ár.

Undanfarin tvö tímabil hefur Ingimar Elí verið í láni hjá BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni.

Sumarið 2011 fór hann einnig frá FH á láni en þá í uppeldisfélag sitt KF. Hann hefur skorað tvö mörk í 74 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Wentzel er 25 ára gamall vinstri kantmaður en hann hefur leikið með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu allan sinn feril.

Wentzel Steinarr skoraði ellefu mörk og var í liði ársins í 2. deildinni í fyrra en í ár var hann á bekknum í liði ársins.

Samtals hefur Wentzel Steinarr skorað 36 mörk í 160 deildar og bikarleikjum með Aftureldingu.

Móðir Wentzels er frá Færeyjum en hann skoraði á sínum tíma einnig eitt mark í þremur leikjum með færeyska U21 árs landsliðinu.

ÍA hefur nú fengið þrjá leikmenn í sínar raðir í vetur en Arnór Snær Guðmundsson kom einnig til félagsins frá Aftureldingu fyrr í vetur.
Ingimar Elí.

Ingimar Elí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.