Fotbolti.net
18.12.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Fyrrum aðstoðarstjóri Liverpool tekur við Walsall (Staðfest)

Fyrrum aðstoðarstjóri Liverpool tekur við Walsall (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sean O\'Driscoll hefur verið ráðinn stjóri Walsall í ensku C-deildinni.

O\'Driscoll var áður aðstoðarstjóri Brendan Rodgers hjá Liveprool en þeir voru báðir reknir í október.

O\'Driscoll stoppaði stutt við á Anfield en hann var ráðinn þar til starfa í sumar.
Hann hefur áður stýrt Bournemouth, Doncaster Rovers, Crawley Town, Nottingham Forest og Bristol City á ferli sínum.

Walsall er í 3. sæti í ensku C-deildinni og í harðri baráttu um að komast upp í Championship deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.