Fotbolti.net
18.12.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Guðmundur Óli framlengir við Þór (Staðfest)

Guðmundur Óli framlengir við Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Guðmundur Óli Steingrímsson er búinn að framlengja samning sinn við Þórsara um eitt ár.

Guðmundur Óli er 29 ára gamall miðjumaður sem gekk til liðs við Þór síðasta febrúar og lék átján deildarleiki í sumar auk tveggja bikarleikja í Borgunarbikarnum.
Guðmundur Óli lék átján ára gamall með Völsungi og Boltafélagi Húsavíkur áður en hann fór til KA 22 ára gamall, árið 2008.

Guðmundur Óli flakkaði á milli Völsunga og KA næstu árin en í fyrra fór hann til KFG, þaðan til KV og loks endaði hann hjá Þórsurum síðasta vor.

Í heildina á Guðmundur Óli 227 meistaraflokksleiki að baki og er stjórn Þórsara ánægð með samningsframlenginguna.

„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi enda Guðmundur mjög sterkur leikmaður og með mikla reynslu,\" stendur á heimasíðu Þórs, thorsport.is.

„Heimasíða Þórs óskar Guðmundi til hamingju með samninginn.\"

Heimild: thorsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.