Fotbolti.net
18.12.21 - 07:30
Victor Pálsson

Abramovich sagður bálreiður út í Real

Abramovich sagður bálreiður út í Real
Canon

Mynd: Getty Images

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er sagður vera pirraður út í spænska félagið Real Madrid þessa dagana.
Frá þessu greina spænskir miðlar en Abramovich er ósáttur með tilraun Real að lokka varnarmanninn Antonio Rudiger í sínar raðir.

Real hefur áhuga á þýska landsliðsmanninum sem verður samningslaus næsta sumar og má ræða við önnur lið í janúar.

Samkvæmt þessum fregnum ætlar Abramovich að hætta við að fjármagna kaup á Eden Hazard á nýju ári vegna þess.

Hazard er sterklega orðaður við endurkomu á Stamford Bridge en hann fær ekkert að spila í Madríd eftir að hafa spilað frábærlega fyrir Chelsea í mörg ár.

Það er talað um að Real sé þegar búið að ræða við Rudiger um möguleg skipti og er leikmaðurinn sjálfur opinn fyrir því að hreyfa sig til.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.