Fotbolti.net
18.12.21 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aldrei fyrirgefið Eiði Smára fyrir hjólhestaspyrnumarkið

Aldrei fyrirgefið Eiði Smára fyrir hjólhestaspyrnumarkið
Canon

Mynd: x977

Máni Pétursson stuðningsmaður Leeds var gestur hjá Sæbirni Steinke í hlaðvarpsþættinum Enski Boltinn á dögunum.
Hann ræddi Leeds fram og til baka. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eitt eftirminnilegasta markið sitt á ferlinum gegn Leeds en útaf því marki er hann ekki hátt skrifaður hjá Mána.

„Ég hef aldrei fyrirgefið Eiði Smára, þegar ég hitti hann í fyrsta skiptið þegar hann kom í viðtal þá tilkynnti ég honum að hann væri hálvíti fyrir mér og það væri útaf þessari afturhjólaspyrnu sem hann skoraði. Maður fagnaði alltaf þegar Eiður Smári skoraði en versta er að fallegasta markið sem hann skoraði var á móti Leeds og að þurfa að sjá það aftur og aftur, ég þoli það ekki. Ég á alltaf erfitt með Eið Smára útaf þessu," sagði Máni.

Þetta var tímabilið 2002/03 en Chelsea endaði þá í 4. sæti en Leeds í 15. sæti. Leeds féll síðan tímabilið á eftir og komst ekki aftur upp í Úrvalsdeild fyrr en á síðustu leiktíð.

Markið hans Eiðs gegn Leeds má sjá hér að neðan.

<b>Enski boltinn</b> - Máni og Steini Halldórs um Leeds og Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.