18.12.21 - 09:43
Brynjar Ingi Erluson
Óliver lánaður til De Graafschap (Staðfest)

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend
Óliver Þorkelsson, leikmaður Hamars í 4. deildinni, verður á láni hjá hollenska B-deildarfélaginu De Graafschap til næsta sumars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Óliver, sem er 16 ára gamall, spilaði með Hamar í 4. deildinni í sumar og skoraði 4 mörk í 13 leikjum.
Hann fór á reynslu til De Graafschap í nóvember og æfði með bæði U17 og U18 ára liði félagsins.
De Graafschap vildi sjá meira af leikmanninum og ákvað að fá hann á láni til næsta sumars en hann heldur út í janúar og mun spila með U17 ára liðinu.
Mees Siers, fyrrum leikmaður Fjölnis og ÍBV, er þjálfari U17 ára liðsins.