18.12.21 - 16:53
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo kaupir Cruzeiro (Staðfest)

Ronaldo er nýr eigandi Cruzeiro

Mynd: Getty Images

Ronaldo er nýr eigandi Cruzeiro

Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Ronaldo tilkynnti í dag kaup á brasilíska félaginu Cruzeiro en hann verður aðaleigandi félagsins.
Ronaldo er talinn einn besti leikmaður allra tíma en hann var þrisvar valinn besti leikmaður ársins.
Hann spilaði með félögum á borð við PSV, Barcelona, Real Madrid, Milan og Inter. Ronaldo hóf ferilinn hjá brasilíska félaginu Cruzeiro og nú er hann kominn aftur heim.
Ronaldo tilkynnti kaupin á Cruzeiro í dag en hann hefur getið sér gott orð í viðskiptaheiminum.
Hann er einnig eigandi spænska félagsins Real Valladolid og átti þá einnig hlut í bandaríska liðinu Fort Lauderdale Strikers.