18.12.21 - 15:26
Brynjar Ingi Erluson
„Vonsvikinn með það hvernig ég yfirgaf Liverpool"

Raheem Sterling

Mynd: EPA

Sterling þótti einn efnilegasti leikmaður Englands er hann spilaði með Liverpool

Mynd: Getty Images

Raheem Sterling

Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Raheem Sterling skoraði 100. mark sitt í ensku úrvalsdeildinni fyrir Manchester City á dögunum og fór aðeins yfir ferilinn með Sky Sports en þar kom hann inná félagaskiptin frá Liverpool og Manchester City.
Man City keypti Sterling frá Liverpool sumarið 2015 fyrir 49 milljónir punda og gerði hann langtímasamning við City en margir stuðningsmenn hafa ekki enn fyrirgefið honum fyrir það hvernig hann yfirgaf félagið sem gaf honum tækifærið í efstu deild.
Sterling hafði verið í samningaviðræðum við Liverpool en hafnaði mjög rausnarlegu boði um að framlengja. Stuttu síðar mætti hann í viðtal við BBC og greindi frá því að hann hefði hafnað Liverpool.
Brendan Rodgers, sem var þá stjóri Liverpool, gagnrýndi Aidy Ward, umboðsmann Sterling, fyrir að hafa samband við BBC og senda leikmanninn í viðtal.
Ward sagði að það væru engar líkur á því að Sterling myndi framlengja við Liverpool í maí, jafnvel þó félagið myndi bjóða honum allt að 900 þúsund pund á viku. Þegar leið á sumarið var Liverpool búið að hafna tilboði upp á 30 milljónir punda en Sterling ræddi við félagið og bað um að sleppa ferð liðsins til Asíu á undirbúningstímabilinu svo hann gæti samið við City.
Sterling sér eftir því hvernig farið var að málunum.
„Stundum verður maður að vita hvað maður vill. Ferillinn er stuttur og þú veist í raun ekkert hvað mun gerast. Við tökum stundum ákvarðanir, sem eru ekki endilega réttar en stundum rætist úr þeim," sagði Sterling.
„Það eina sem ég mun segja er að ég er mjög vonsvikinn með það hvernig ég yfirgaf Liverpool og hvernig farið var að hlutunum, en fyrir utan það þá hefur þetta verið fínt
„Ég sagði á sínum tíma að metnaður minn og metnaður Liverpool hafi ekki verið í samræmi. Hvernig staðið var að öllu þessu eru einu vonbrigðin."
„Ég átti mjög góða tíma hjá Liverpool og rosalega ungur hjá félagi sem hafði lagt mikla fjárfestingu í mig. Þetta var stór hluti á táningsárunum og félagið hefur átt stórt hlutverk í mínu lífi. Þetta er félag sem mér þykir verulega vænt um og dóttir mín býr enn í Liverpool. Ég gef mér alltaf mikinn tíma fyrir fólkið þarna."
„Þegar vinirnir eða einhverjir spyrja mig hvernig það er á Anfield þá segi alltaf að það sé eins og að fá einhverja ofurkrafta frá borginni og stuðningsmönnum þegar Manchester City eða Manchester United spila þarna og manni líður eins og það sé hægt að gera hluti sem maður vissi ekki að maður gæti. Þetta er mjög sérstakur leikvangur," sagði hann í lokin.