Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
banner
   mán 18. desember 2023 13:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar Gunnlaugs: Efast um að nokkurt lið hafi verið með jafnsterkan leikmannahóp
Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Íslands- og bikarmeistarar 2023.
Íslands- og bikarmeistarar 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Stórkostlegur dagur. Þetta eru ekki bara hvaða leikmenn sem er, þetta eru stórar kannónur á mismunandi stigi á þeirra ferli," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, eftir að félagið kynnti þrjá nýja leikmenn í dag.

Þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Pálmi Rafn Arinbjörnsson skrifuðu undir fjögurra ára samning og Jón Guðni Fjóluson skrifaði undir tveggja ára samning.

„Það þekkja allir Jón Guðna og Valdimar líka. Pálmi er kannski minna þekktur á Íslandi en við erum búnir að fylgjast með honum lengi og fengum góða skýrslu frá Wolves," sagði þjálfarinn sem fór yfir alla þrjá leikmennina.

Hópurinn hjá Víkingi var fyrir virkilega öflugur en styrkist enn frekar við komu þessara leikmanna.

„Ég er búinn að horfa á þessa Skagaþætti, hrikalega góð nostalgía, en með tilkomu þessara leikmanna er mér til efs um að það hafi nokkurt lið verið með jafnsterkan leikmannahóp, sérstaklega á þessum tímapunkti. Svo veit maður ekki hvort að einhverjir fleiri koma eða einhverjir fara. Við erum virkilega vel í stakk búnir að taka þátt í að vinna titlana tvo aftur og gera vel í Evrópu."

Arnar ræðir um leikmannahópinn, Þórð Ingason, vinstri bakvarðarstöðuna, heimsóknir til fyrrum félaga sinna og viðræðurnar við Norrköping.

Þarf allt að ganga upp
Ef Arnar verður áfram í Víkingi, er stefnan sett á tvennuna og riðlakeppni í Evrópu?

„Klárlega. Ég veit að þetta er hægt, en það þarf allt að ganga upp, það þarf að æfa rétt, það þarf að rótera liðinu rétt yfir sumartímann, leikmannahópurinn þarf að vera vel stemmdur; hungraður og allir að ýta á hvern annan. Ég held að þetta sé hægt."

„Klárlega hægt að læra af Blikum. Blikar fóru fyrstir inn í þetta og gerðu rosalega vel í að komast í þessa keppni. Margir hafa talað um að þeir hafi verið heppnir með drátt og þessháttar. En þetta er eins og í bikarnum, þú þarft samt að vinna bikarinn hvort sem þú lendir á móti Leikni Fáskrúðsfirði eða KR í 16-liða úrslitum. Þú þarft að vinna þessi lið og Blikar gerðu það, fóru í riðlakeppnina og urðu örugglega fyrir smá vonbrigðum að hafa ekki tekið nein stig. Þeir sýndu góða frammistöðu inn á milli. Ég horfði á alla leikina þeirra og það er klárlega eitthvað hægt að læra."

„Það er líka hægt að læra af því hvernig KÍ Klaksvík fór í gegnum sína keppni. Það er ekki bara hægt að treysta á að vera heppinn með andstæðinga. Ef þú lendir á móti sterkum andstæðingum þá þarftu að gjöra svo vel að veita þeim nægilega góða samkeppni til að eiga séns í að komast áfram. Þetta er gríðarlega mikil áskorun,"
sagði Arnar.

Komnir
Jón Guðni Fjóluson frá Hammarby
Pálmi Rafn Arinbjörnsson frá Wolves
Valdimar Þór Ingimundarson frá Sogndal
Bjarki Björn Gunnarsson frá ÍBV (var á láni)
Ísak Daði Ívarsson frá Keflavík (var á láni)
Jóhannes Karl Bárðarson frá Þrótti V. (var á láni)
Sigurður Steinar Björnsson frá Gróttu (var á láni)
Sveinn Gísli Þorkelsson frá Fylki (var á láni)

Farnir
Arnór Borg Guðjohnsen til FH (var á láni - seldur)
Logi Tómasson til Strömsgodset
Kyle McLagan í Fram
Þórður Ingason hættur
Slapp
banner