Fotbolti.net
19.01.13 - 11:40
Brynjar Ingi Erluson

Edvard Börkur í Tindastól (Staðfest)

Edvard Börkur er kominn aftur á Krókinn

Edvard Börkur er kominn aftur á Krókinn

Canon

Mynd: Valgeir Kárason

Edvard Börkur Óttharsson, leikmaður Vals, er genginn í raðir Tindastóls á láni út tímabilið en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Edvard, sem er 20 ára gamall varnarmaður, var besti leikmaður Tindastóls á síðustu leiktíð þar sem liðið gerði góða hluti í fyrstu deildinni.

Í kjölfarið gekk Edvard Börkur til liðs við sitt gamla félag Val á nýjan leik síðastliðið haust en hann lék með félaginu í yngri flokkunum.

Hann hefur nú ákveðið að flytja búferlum alfarið norður á Sauðárkrók og gengið hefur verið frá lánssamningi út tímabilið.

Edvard spilaði sinn fyrsta leik fyrir Tindastól í 1-0 tapi gegn Haukum í gær í Fótbolta.net mótinu, en ljóst er að þetta kemur til með að styrkja liðið mikið fyrir komandi sumar.

Heimild: Heimasíða Tindastóls

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.