Fotbolti.net
19.01.16 - 16:49
Magnús Már Einarsson

Costel Pantilimon til Watford (Staðfest)

Búinn að pakka niður og er farinn til Watford.

Búinn að pakka niður og er farinn til Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur keypt markvörðinn Costel Pantilimon frá Sunderland en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Hinn hávaxni Pantilimon mun berjast við Heurelho Gomes um markvarðar stöðuna hjá Watford.

Hinn 28 ára gamli Pantilimon kom til Watford frá Manchester City sumarið 2014.
Sam Allardyce tók Pantilimon út úr liðinu hjá Sunderland fyrir nokkrum vikum og hann hefur nú gengið í raðir Watford.

Pantilimon lék samtals 49 leiki með Sunderland en orðrómur er um að eftir 50 leiki hafi hann átt að fá mun betri samning og að félagið hafi ekki verið tilbúið í það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.