19.01.16 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Pennant til Singapúr (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jermaine Pennant, fyrrum kantmaður Arsenal og Liverpool, hefur samið við Tampines Rovers í Singapúr.
Talið er að Pennant fái tæplega 20 þúsund pund í viklaun eða tæpar fjórar milljónir króna. Það gerir hann að launahæsta leikmanni í sögu úrvalsdeildarinnar Singapúr.

„Ég lít ekki á þetta sem slakari deild. Þetta er bara annar kafli á ferli mínum,\" sagði hinn 33 ára gaml Pennant eftir undirskrift.
Pennant hefur verið án félags síðan Wigan féll niður í ensku C-deildina á síðasta tímabili og fór meðal annars á reynslu til Muangthong United í Taílandi síðasta nóvember þar sem hann fékk þó ekki samning.
Pennant þótti gríðarlega efnilegur en vandræðin hafa alltaf fylgt honum og afrekaði hann það árið 2005 að vera fyrsti leikmaðurinn til að spila leik í ensku úrvalsdeildinni með staðsetningartæki frá lögreglunni.