19.01.16 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Rolando Mandragora til Juventus (Staðfest)

Rolando Mandragora.

Mynd: Getty Images

Rolando Mandragora.

Mynd: Getty Images
Ítalski unglingalandsliðsmaðurinn Rolando Mandragora er kominn í eigu Juventus sem kaupir þennan 18 ára miðjumann frá Genoa.
Mandragora hefur leikið með Pescara á lánssamningi á þessu tímabili og lánar Juventus hann beint aftur til baka í Pescara út tímabilið.

Juventus kaupir leikmanninn á 6 milljónir evra en 6 milljónir í viðbót gætu bæst við eftir frammistöðu leikmannsins.
„Mandroga er ungur og býr yfir miklum gæðum. Það er gott að fá hann,\" segir Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus.
Þá segir Allegri að framherjinn Simone Zaza sé ekki á förum í janúarglugganum en hann hefur ekki náð að vinna sér fast sæti eftir að hann kom frá Sassuolo síðasta sumar.