Fotbolti.net
19.01.16 - 16:59
Elvar Geir Magnússon

Steven Naismith til Norwich (Staðfest)

Naismith kveður Everton.

Naismith kveður Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur gengið frá kaupum á framherjanum Steven Naismith frá Everton en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning. Kaupverð var ekki gefið upp.

Naismith á 41 landsleik fyrir Skotland en Kanarífuglarnir hafa einnig fengið til sín Matt Jarvis, Ivo Pinto, Timm Klose og hinn unga Ben Godfrey núna í janúarglugganum.
Naismith byrjaði ferilinn hjá Kilmarnock og lék fjölmarga leiki fyrir félagið áður en hann gekk í raðir Rangers í Glasgow 2007.

Með Rangers varð hann í þrígang skoskur meistari og tvisvar skoskur bikarmeistari áður en hann fór til Everton 2012.

Í viðtali við heimasíðu Norwich segist Naismith vera ánægður með að framtíð sín sé ljós og hann geti nú einbeitt sér að fótboltanum.

Norwich er í sextánda sæti, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

DONE DEAL | City sign @Everton forward Steven Naismith for an undisclosed fee: https://t.co/UlaZMwzBmv #ncfc pic.twitter.com/TuCFyZ92Vv

— Norwich City FC (@NorwichCityFC) January 19, 2016
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.