Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. janúar 2021 20:45
Aksentije Milisic
Man Utd hefur áhuga á argentínskum varnarmanni
Mynd: Getty Images
Manchester United er sagt hafa áhuga á Argentínumanninum Facundo Medina en hann er miðvörður sem spilar hjá Lens í Frakklandi.

Medina kom til Lens frá Talleres í Argentínu en hann hefur þótt standa sig mjög vel í Frakklandi.

Talið er að United ætli sér að bjóða 11 milljónir punda í leikmanninn en planið er að lána hann aftur í Lens út tímabilið.

Fjölmörg lið á Englandi hafa fylgst með þessum varnarmanni en hann er 21 árs og er sagður vera mjög góður á boltann. Þá lest hann leikinn vel og er með góðar staðsetningar.

Lens eru nýliðar í frönsku úrvalsdeildinni og hefur liðið staðið sig vel það sem af er á þessari leiktíð. Liðið situr í tíunda sæti deildarinnar með 28 stig eftir 19 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner