19.02.13 - 16:06
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Ólafur í Val (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Ólafur Eiríksson hefur samið við uppeldisfélag sitt Val. Bjarni fór frá Val til Stabæk eftir sumarið 2009. Samningur Stabæk rann út eftir síðasta tímabil og Bjarni hefur verið félagslaus undanfarna mánuði.
Hann er nú staddur í Vodafone-Höllinni á Hlíðarenda og er að ganga frá samningum.
Hann er nú staddur í Vodafone-Höllinni á Hlíðarenda og er að ganga frá samningum.
Bjarni á 21 A-landsleik að baki og getur bæði spilað sem vinstri bakvörður og miðvörður.
Hann gerir þriggja ára samning við Val.
Viðtal við Bjarna er væntanlegt hér á síðuna innan skamms.
Hann gerir þriggja ára samning við Val.
Viðtal við Bjarna er væntanlegt hér á síðuna innan skamms.
