Fotbolti.net
19.02.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Jack Robinson til Wolves á láni (Staðfest)

Jack Robinson til Wolves á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jack Robinson, vinstri bakvörður Liverpool, hefur gengið til liðs við Wolves á láni út tímabilið.

Þessi 19 ára gamli leikmaður á að veita Stephen Ward samkeppni um stöðu vinstri bakvarðar þar sem George Elokobi mun ekki spila meira á tímabilinu vegna meiðsla.
Robinson hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Liverpool en árið 2010 varð hann yngsti leikmaður félagsins til að spila í ensku úrvalsdeildinni þegar hann kom við sögu í lokaumferðinni gegn Hull.

Wolves er stigi frá fallsæti í Championship deildinni en tveir Íslendingar eru á mála hjá félaginu, Björn Bergmann Sigurðarson og Eggert Gunnþór Jónsson.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.