Fotbolti.net
19.02.13 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Salih Heimir Porca tekinn við KFG (Staðfest)

Salih Heimir Porca tekinn við KFG (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Salih Heimir Porca er tekinn við þjálfun Garðabæjarliðsins KFG en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í gær. KFG hefur alla tíð leikið í neðstu deild.

Porca tekur við þjálfun liðsins af Lárusi Guðmundssyni sem jafnframt er formaður félagsins.
Porca þjálfaði Hamar í Hveragerði síðasta sumar en liðið hafnaði í níunda sæti 2. deildarinnar.

Áður hefur hann þjálfað kvennalið Hauka og Keflavíkur og 2. flokk karla hjá Breiðabliki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.