Fotbolti.net
19.02.13 - 14:19
Magnús Már Einarsson

Sveinbjörn Jónasson í Þrótt (Staðfest)

Sveinbjörn er kominn aftur í Þrótt.

Sveinbjörn er kominn aftur í Þrótt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Sveinbjörn Jónasson, sóknarmaður úr Fram, hefur gengið til liðs við Þrótt á nýjan leik en hann hefur skrifað undir eins árs samning við félagið.
,,Ég var að glíma við meiðsli í læri allt síðasta sumar og undanfarin ár og þarf að fá að stjórna aðeins álaginu til að geta spilað af 100% getu, eins vegna vinnu var erfitt að ná öllum æfingum hjá Fram svo ég taldi réttast að skipta,\" sagði Sveinbjörn við Fótbolta.net í dag.

Sveinbjörn þekkir til hjá Þrótti því hann spilaði með liðinu sumarið 2011 og var þá markahæsti leikmaðurinn í fyrstu deildinni.

,,Mér líst mjög vel á komandi tímabil. Þróttur er með góðan þjálfara, góðan og skemmtilegan leikmannahóp og frábæra stuðningsmenn og ég hef trú á að við getum gert mjög góða hluti í sumar. Það er algjör snilld að vera í Laugardalnum.“

Sveinbjörn er 26 ára gamall en hann skoraði fjögur mörk í nítján deildar og bikarleikjum með Fram í fyrra þar sem hann kom oftast inn á sem varamaður.

Á ferli sínum hefur Sveinbjörn einnig leikið með uppeldisfélagi sínu Huginn, Grindavík og Fjarðabyggð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.