19.02.13 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Zlatko Krickic í Stál-úlf (Staðfest)


Mynd: Slava Titov


Mynd: Slava Titov
Kópavogsliðið Stál-úlfur hefur fengið góðan liðsstyrk en á dögunum gekk miðjumaðurinn Zlatko Krickic í raðir félagsins frá Leikni í Breiðholti.
Zlatko lék 14 leiki með Leikni í 1. deildinni í sumar en þar áður lék hann með ÍA og HK.
Zlatko lék 14 leiki með Leikni í 1. deildinni í sumar en þar áður lék hann með ÍA og HK.
Hann er fæddur 1992 og mun vafalítið styrkja Stál-úlf mikið en liðið leikur í fjórðu og neðstu deild og leikur heimaleiki sína í Kópavogi.
Íþróttafélagið Stál-úlfur var stofnað 2010 af þekktum litháískum íþróttamönnum sem búa hér á landi. Það tók þátt í Íslandsmótinu í fótbolta í fyrsta sinn síðasta sumar.
Íþróttafélagið Stál-úlfur var stofnað 2010 af þekktum litháískum íþróttamönnum sem búa hér á landi. Það tók þátt í Íslandsmótinu í fótbolta í fyrsta sinn síðasta sumar.
