Fotbolti.net
19.02.14 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Rene Meulensteen rekinn frá Fulham (Staðfest)

Sviginn er mættur.

Sviginn er mættur.

Canon

Mynd: Getty Images

Þrátt fyrir að það séu alls ekki nýjar fréttir að Felix Magath hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri Fulham í stað Rene Meulensteen, þá hefur félagið nú ekki fyrr en nú staðfest að sá síðarnefndi sé í raun og veru farinn frá félaginu.
Auk Meulensteen eru þeir Alan Curbishley, Ray Wilkins, Mick Pries og Jonathan Hill farnir frá félaginu.

Í staðinn hafa þeir Tomas Oral og Werner Leuthard verið ráðnir inn í þjálfarateymið og heyra þeir nú undir Felix Magath.

Meulensteen greindi sjálfur frá því að hann hefði verið rekinn frá Fulham, áður en félagið sjálft greindi frá því nú í kvöld. Þetta mál þykir hafa verið höndlað á mjög undarlegan hátt.

Ekki er langt síðan Meulensteen tók við liði Fulham af Martin Jol, en skömmu áður hafði hann verið ráðinn til að vera samlanda sínum innan handar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.