19.02.16 - 22:44
Arnar Geir Halldórsson
Nocerino til Orlando City (Staðfest)

Farinn til Bandaríkjanna

Mynd: Getty Images

Farinn til Bandaríkjanna

Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Antonio Nocerino hefur gengið frá samningum við bandaríska úrvalsdeildarliðið Orlando City.
Nocerino kemur til Orlando frá AC Milan en hann spilaði aðeins tvo leiki fyrir Milan á þessari leiktíð.
Þessi þrítugi miðjumaður hefur leikið 13 A-landsleiki fyrir Ítalíu og var hluti af silfurliði Ítalíu á EM 2012.
Hjá Orlando hittir Nocerino fyrrum liðsfélaga sinn hjá AC Milan, Brasilíumanninn Kaka.
Orlando City tókst ekki að komast í úrslitakeppnina á síðustu leiktíð þar sem liðið endaði í sjöunda sæti Austurdeildarinnar en MLS deildin hefst að nýju þann 6.mars næstkomandi.