Fotbolti.net
19.02.16 - 16:20
Magnús Már Einarsson

Simon Smidt í ÍBV (Staðfest)

Frá undirskrift samningsins í dag.

Frá undirskrift samningsins í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gabríel Sighvatsson

ÍBV hefur samið við danska sóknarmanninn Simon Smidt en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.

Samningur Smidt við ÍBV gildir út tímabilið 2017.

„Við hjá ÍBV erum afar sátt við að fá þennan sterka danska leikmann í hóp okkar Eyjamanna fyrir komandi tímabil og væntum mikils af honum. ÍBV býður Simon og sambýliskonu hans, Maiken Pedersen, velkomin til Eyja og hlökkum til samstarfsins og samvinnunnar með þeim,\" segir í yfirlýsingu ÍBV.
Smidt kom til Íslands á reynslu á dögunum og átti mjög góðan leik þegar ÍBV vann 2-1 sigur gegn KR í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins.

Hinn 25 ára gamli Smidt getur spilað í öllum sóknarstöðunum en hann var á hægri kantinum hjá ÍBV gegn KR.

Smidt er uppalinn hjá Vejle í Danmörku en hann lék síðast með Fyllingsdalen í norsku C-deildinni.

Smidt er annar danski sóknarmaðurinn sem ÍBV fær í sínar raðir í vetur en áður hafði Mikkel Maigaard Jakobsen samið við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.