19.02.16 - 17:25
Magnús Már Einarsson
Warnock semur í fimmta skipti við Paddy Kenny (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Markvörðurinn reyndi Paddy Kenny hefur gengið til lið við Rotherham í ensku Championship deildinni.
Neil Warnock tók við Rotherham á dögunum og var ekki lengi að draga upp símann og hringja í Kenny.
Þetta er í fimmta skipti á stjóraferlinum sem Warnock fær Kenny í lið hjá sér.
Hinn 37 ára gamli Kenny hefur áður spilað undir stjórn Warnock hjá Bury, Sheffield United, QPR og Leeds.

Warnock var án félags en hann ætlar nú að reyna að hjálpa Rotherham í fallbaráttunni í Championship deildinni.