
FH hefur samið við varnarmanninn Taylor Sekyra frá Bandaríkjunum en hún mun spila með liðinu í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.
„Taylor er öflugur varnarmaður sem kemur til liðs við FH beint úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum en hún hefur undanfarin ár spilað með Washington háskólanum í Seattle við góðan orðstír," segir á Facebook síðu FH.
„Við bindum miklar vonir við Taylor fyrir komandi tímabil og bjóðum hana velkomna í FH. #ViðerumFH"
FH komst upp í Pepsi Max-deild kvenna síðastliðið haust en auk Taylor hafa Birta Georgsdóttir. Hrafnhildur Hauksdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir gengið til liðs við félagið í vetur.
Athugasemdir