Fotbolti.net
19.02.22 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Ingi og Ólafur Valur í Kára (Staðfest)

Ólafur Valur

Ólafur Valur

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Kári er að styrkja sig fyrir komandi baráttu í 3. deild karla í sumar. Kári féll úr 2. deild síðasta sumar, endaði einungis með níu stig - fimmtán stigum frá öruggu sæti.

Til félagsins eru komnir þeir Ólafur Valur Valdimarsson frá ÍA og Aron Ingi Kristinsson frá Þrótti. Ólafur er fæddur árið 1990 og kom við sögu í sjö leikjum með ÍA á síðasta tímabili. Hann lék einnig með Kára tímabilið 2015.
Aron Ingi er fæddur árið 1998 og lék ellefu leiki með Þrótti Reykjavík á síðasta tímabili. Hann þekkir til hjá Kára því hann er uppalinn á Skaganum og lék með Kára sumarið 2019.

Þá eru þeir Davíð Freyr Bjarnason (2002 frá Skallagrími), Sigurjón Ari Guðmundsson (1999 frá Skallagrími) og Steindór Már Gunnarsson (2002 frá ÍA) komnir með leikheimild með Kára.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.