Fotbolti.net
19.02.25 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Axel Kári ráðinn lögfræðingur hjá KSÍ

Axel Kári fagnar hér marki með ÍR.

Axel Kári fagnar hér marki með ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ hefur ráðið Axel Kára Vignisson í starf lögfræðings á skrifstofu KSÍ og hefur hann störf 1. mars næstkomandi.

Axel Kári lauk BA námi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2017 og Magister Juris frá sama skóla árið 2019. Þá öðlaðist hann málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2020 og hefur starfað sem lögmaður hjá Íslensku lögræðistofunni síðan þá.
Auk lögmannsstarfa á Axel Kári að baki leikmannsferil þar sem hann lék hátt í fjögur hundruð KSÍ-leiki í meistaraflokki; flesta með uppeldisfélagi sínu ÍR, en einnig með HK, Víkingi R., Keflavík og Létti, auk þess að hafa þjálfað yngri flokka og starfað sem vallarstarfsmaður hjá ÍR.

Axel Kári lagði leikmannsskóna á hilluna 2022 og tók að sér hlutverk formanns knattspyrnudeildar hjá ÍR þar sem hann öðlaðist reynslu af félagsstörfum innan og fyrir hönd síns félags.

„KSÍ býður Axel Kára velkominn til starfa," segir í tilkynningu KSÍ en Axel tekur við starfinu af Hauki Hinrikssyni sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Víkings.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.