Fotbolti.net
19.02.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Verður Szoboszlai framtíðarfyrirliði Liverpool?

Verður Szoboszlai framtíðarfyrirliði Liverpool?
Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk fyrirliði Liverpool segir að samherji sinn Dominik Szoboszlai gæti tekið við fyrirliðabandinu í framtíðinni.
Það hefur verið mikið rætt um Szoboszlai að undanförnu þar sem hann er búinn að vera besti leikmaður Liverpool á tímabilinu hvort sem hann spilar á miðjunni, sem bakvörður eða í sóknarlínunni.

Liðsfélagar hans og þjálfari eru yfir sig hrifnir af Ungverjanum sem er í viðræðum við Englandsmeistarana um nýjan samning. Núverandi samningur hans við félagið rennur út sumarið 2028.

Salah og Slot sammála: Szoboszlai einn af þeim bestu
TENGT EFNI

Salah og Slot sammála: Szoboszlai einn af þeim bestu



Szoboszlai hefur verið orðaður við spænska stórveldið Real Madrid og segir Marco Rossi, landsliðsþjálfari hans í Ungverjalandi, að leikmanninn dreymi um að spila fyrir Real.

Szoboszlai dreymir um Real Madrid
TENGT EFNI

Szoboszlai dreymir um Real Madrid



„Það er þjálfarinn sem þarf að taka þessa ákvörðun, en jú. Hann er augljóslega búinn að vera mjög góður og þetta er leikmaður sem ég held að geti tekið næsta skref í áttina að því að verða leiðtogi fyrir þetta lið," sagði Van Dijk þegar hann var spurður hvort Szoboszlai kæmi til greina sem framtíðarfyrirliði Liverpool.

„Þetta byrjar allt á því að sýna gott fordæmi og hann hefur verið að gera það á tímabilinu. Það er samt margt annað sem þarf til að vera góður fyrirliði og vonandi verður hann mikilvægur leikmaður fyrir Liverpool næstu árin."

Liverpool keypti Szoboszlai úr röðum RB Leipzig fyrir 60 milljónir punda sumarið 2023.

Umboðsmaður leikmannsins þvertekur fyrir alla orðróma og hefur sagt að skjólstæðingur sinn sé ekki að leitast eftir því að skipta um félag.
Verður Szoboszlai framtíðarfyrirliði Liverpool?
Canon

Mynd: EPA

Verður Szoboszlai framtíðarfyrirliði Liverpool?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.