Fotbolti.net
19.03.14 - 18:08
Elvar Geir Magnússon

Andri Ólafsson í Grindavík (Staðfest)

Andri Ólafsson í leik með KR fyrir ári síðan.

Andri Ólafsson í leik með KR fyrir ári síðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Ólafsson hefur skrifað undir samning við Grindavík út komandi tímabil. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Við greindum frá því í síðustu viku að Andri væri búinn að æfa með Grindvíkingum og nú hefur hann skipt yfir til liðsins frá KR.

Andri er 28 ára og kom til KR frá ÍBV fyrir ári síðan en gat ekkert spilað síðastliðið sumar vegna þrálátra bakmeiðsla.

Þetta er góður styrkur fyrir Grindvíkinga sem voru nálægt því að komast upp úr 1. deildinni síðasta sumar og setja stefnuna á að fara alla leið á komandi tímabili.

Myndin hér að neðan var tekin við undirskrift samningsins við Andra sem getur bæði leikið í vörn og á miðju.

Neðri röð frá vinstri: Jónas Karl Þórhallson formaður, Andri Ólafsson Efri röð frá vinstri: Rúnar Sigurjónsson formaður meistaraflokksráðs, Hjörtur Waltersson framkvæmdastjóri.

Neðri röð frá vinstri: Jónas Karl Þórhallson formaður, Andri Ólafsson Efri röð frá vinstri: Rúnar Sigurjónsson formaður meistaraflokksráðs, Hjörtur Waltersson framkvæmdastjóri.

Canon

Mynd: Grindavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.