19.03.16 - 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Niko Kranjcar til New York Cosmos (Staðfest)

Kranjcar lék 71 leik fyrir Tottenham á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Króatíski miðjumaðurinn Niko Kranjcar hefur samið við bandaríska B-deildarliðið New York Cosmos.
Þessi fyrrum leikmaður Tottenham, Portsmouth og QPR hefur verið án félags undanfarið eftir að hann samdi um starfslok við Dynamo Kiev í janúar síðastliðnum.
Kranjcar á 81 landsleik að baki fyrir Króatíu en hefur ekki verið viðloðandi landsliðið upp á síðkastið.
„Ég hef notið þess að æfa með Cosmos og mér líkar vel við strákana og þjálfarana. Ég held að deildin henti mínum leiksstíl vel og ég hlakka til að komast af stað,\" sagði Kranjcar.