19.03.16 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Snorri Eldjárn og Ívar í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Snorri Eldjárn Hauksson (til hægri) er kominn aftur í Dalvík/Reyni.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Dalvík/Reynir hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 3. deildinni í sumar en Snorri Eldjárn Hauksson og Ívar Sigurbjörnsson eru komnir til félagsins.
Snorri er miðvörður sem á að baki 117 leiki með Dalvík/Reyni.
Í fyrra lék Snorri með Einherja í 3. deildinni en hann er nú kominn aftur á heimaslóðir.

Ívar er bakvörður sem er fæddur 1996 en hann kemur á láni frá KA.
Dalvík/Reynir leikur í 3. deildinni í sumar eftir fall úr 2. deildinni í fyrra en Atli Sveinn Þórarinsson þjálfar liðið.