Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. mars 2020 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hvíta-Rússland: BATE byrjar illa - Willum kom við sögu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag fóru fyrstu tveir leikirnir fram í Hvít-rússnesku deildinni, Vysshaya Liga.

Willum Þór Willumsson er leikmaður BATE sem endaði í öðru sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Willum byrjaði á varamannabekknum í dag en kom inn á á 77. mínútu. Willum kom inn í stöðunni 2-1 fyrir heimamenn Energetik-BGU.

Lokatölur voru 3-1 fyrir heimamenn sem eru mjög óvænt úrslit, Energetik endaði í 12. sæti deildarinnar í fyrra af 16 liðum.

Enn er verið að spila í Hvíta-Rússlandi en fyrr í dag var ákveðið að fresta öllum leikjum í Tyrklandi eftir að spilað var þar í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner