19.03.22 - 21:36
Brynjar Ingi Erluson
Adam Örn í Breiðablik (Staðfest)

Adam Örn Arnarson er mættur aftur í Blika

Mynd: Knattspyrnudeild Breiðabliks

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við Adam Örn Arnarson um að spila með liðinu í sumar en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Adam er uppalinn hjá félaginu og spilaði einn leik í Pepsi-deildinni árið 2012 áður en hann var keyptur til NEC Nijmegen í Hollandi.
Ásamt því að spila í Hollandi þá lék hann einnig með Nordsjælland, Álasundi, Gornik Zabrze og nú síðast Tromsö, en samningur hans við norska félagið rann út um áramótin.
Hann hefur æft og spilað með Blikum síðustu vikur en hefur nú ákveðið að gera samning um að leika með liðinu í sumar.
Adam, sem er 26 ára, á að baki landsleiki fyrir öll yngri landslið Íslands og þá á hann einn A-landsleik gegn Mexíkó.