Fotbolti.net
19.03.22 - 19:29
Brynjar Ingi Erluson

Æfingaleikir: Hólmar Örn og Aron Jó skoruðu í tapi - HK lagði ungt lið Blika

Emil Berger skoraði fyrir Leikni

Emil Berger skoraði fyrir Leikni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir R. lagði Val, 3-2, í æfingaleik á Origo-vellinum í dag á meðan Breiðablik tapaði fyrir HK í nágrannaslag á Kópavogsvelli í gær.
Blikar tefldu fram ungu liði gegn HK en liðið var skipað leikmönnum sem hafa spilað minna og strákum úr 2. flokki félagsins. Brynjar Atli Bragason, markvörður Breiðabliks, var fyrirliði í leiknum.

Örvar Eggertsson og Teitur Magnússon skoruðu mörk HK-inga í leiknum. Hassan Jalloh, sem var á reynslu hjá Grindavík í síðasta mánuði, spilaði með HK-ingum í leiknum.

Leiknismenn unnu þá Val á Origo-vellinum í dag, 3-2. Hólmar Örn Eyjólfsson kom Valsmönnum yfir eftir hornspyrnu áður en Birgir Baldvinsson jafnaði metin. Daníel Finns Matthíasson kom Leiknismönnum yfir áður en Emil Berger náði að auka forystuna úr vítaspyrnu.

Aron Jóhannsson minnkaði muninn fyrir Val úr vítaspyrnu og þar við sat.

Úrslit og markaskorarar:

Breiðablik 0 - 2 HK
0-1 Örvar Eggertsson
0-2 Teitur Magnússon

Valur 2 - 3 Leiknir R.
1-0 Hólmar Örn Eyjólfsson
1-1 Birgir Baldvinsson
1-2 Daníel Finns Matthíasson
1-3 Emil Berger (víti)
2-3 Aron Jóhannsson (víti)
Æfingaleikir: Hólmar Örn og Aron Jó skoruðu í tapi - HK lagði ungt lið Blika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.