Fotbolti.net
19.03.22 - 13:18
Ívan Guðjón Baldursson

Anna Petryk í Breiðablik (Staðfest)

Anna Petryk í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn

Úkraínska landsliðskonan Anna Petryk er komin til Íslands þar sem hún mun spila fyrir Breiðablik.

Anna gengur í raðir Blika frá úkraínsku meisturunum frá Kharkiv en rússneski herinn er búinn að leggja borgina í rúst og því er henni frjálst að skipta um félag án endurgjalds.

Blikar spiluðu við Önnu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar síðasta haust og voru fljótir að bregðast við þegar það fréttist að hún væri tilbúin að flytja til Íslands.

Anna er 24 ára gömul og er uppalin í borginni Maríupol sem hefur einnig verið lögð í rúst af rússneska hernum. Hún var lykilmaður í liði Kharkiv síðasta haust og á 102 leiki að baki í úkraínsku deildinni. Þar að auki á hún 19 leiki að baki í Meistaradeildinni og 20 landsleiki fyrir Úkraínu.

Anna mætti á sína fyrstu æfingu með Breiðablik á fimmtudag og verður spennandi að fylgjast með henni spreyta sig með íslensku stórveldi.

„Saman ætlum við að gera allt til þess að gera dvöl hennar á Íslandi sem besta. Við hugsum áfram hlýtt til Úkraínu og fordæmum stríð og árásir á saklausa borgara," segir í yfirlýsingu Blika.

„Velkomin í Kópavoginn og til Breiðabliks, Anna Petryk"

Sjá einnig:
Á leið í íslenska boltann en hefur ekki komist heim síðan stríðið hófst 



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.