Fotbolti.net
19.03.22 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Arnar Már í Kára (Staðfest)

Arnar Már í Kára (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<p>Kári er búið að tryggja sér Arnar Már Guðjónsson sem á yfir 100 leiki að baki bæði í efstu og næstefstu deild.</p>

Arnar Már er fæddur 1987 og hefur leikið með ÍA alla sína tíð að undanskildum tveimur árum þar sem hann var fastamaður í byrjunarliði KA.

Í heildina hefur Arnar Már skorað 61 mark í 340 leikjum hér á landi og verður gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Kára sem leikur í 3. deildinni í sumar.

Þetta verður frumraun fyrir Arnar í þriðju deildinni en hann hefur ekki heldur prófað að spila í 2. deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.