Fotbolti.net
19.03.22 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Keflavík lánar Jóhann Þór aftur í Víði (Staðfest)

Keflavík lánar Jóhann Þór aftur í Víði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru frábærar fréttir að berast fyrir Víðismenn sem voru að tryggja sér Jóhann Þór Arnarsson á lánssamningi út tímabilið.

Jóhann Þór var hjá Víði í fyrra að láni frá Keflavík og skoraði 12 mörk í 19 leikjum í 3. deildinni.

Jóhann er fæddur 2002 og mun reynast mikill liðsstyrkur fyrir Víðismenn sem enduðu í níunda sæti í fyrra, níu stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Jóhann skoraði einnig eitt mark í tveimur bikarleikjum og var þetta hans fyrsta reynsla sem byrjunarliðsmaður í meistaraflokki. Hann kom við sögu í fjórum keppnisleikjum með Keflavík sumarið 2020 og skoraði eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.