Fotbolti.net
19.03.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Volesky farinn frá Keflavík til Bandaríkjanna (Staðfest)

Volesky farinn frá Keflavík til Bandaríkjanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Christian Volesky hefur fengið félagaskipti frá Keflavík til bandaríska félagsins Monterrey Bay FC.

Volesky er bandarískur framherji sem skoraði tvö mörk í átján leikjum með Keflavík í fyrra.

Hjá Monterrey mun Volesky spila með líberíska miðjumanninum Seku Conneh sem skoraði tvö í tólf leikjum með ÍBV í fyrra.

Volesky er 29 ára gamall og hefur spilað fyrir sjö mismunandi félög á sjö árum eftir háskólann.

Óttar Magnús Karlsson leikur í sömu deild og Monterrey Bay. Hann er hjá Oakland Roots að láni frá Venezia.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.