Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Javon Sample framlengir við KF
Mynd: KF
Markvörðurinn, Javon Sample, mun spila með KF í 2. deildinni í sumar en þetta staðfesti félagið á heimasvæði sínu á Facebook í gær.

Sample, sem er fæddur árið 1995, kom fyrst til landsins árið 2019 og lék þá með Einherja í 3. deildinni.

Hann tók stutt stop hjá Dalvík/Reyni í 2. deildinni árið 2020 og lék þar 1 leik áður en hann hélt aftur í Einherja.

Fyrir tveimur árum gekk hann í raðir KF og þar hefur hann verið síðan.

Sample spilaði 17 leiki í 2. deildinni á síðasta ári er liðið hafnaði í 8. sæti deildarinnar og hann mun leika áfram með liðinu í sumar en hann framlengdi samning sinn út árið.
Athugasemdir
banner
banner